Flokkur: Dagskrá

14.05.2012 19:54

Minni á Kvenfélagsfundinn

Minni kvenfélagskonur á fundinn í annað kvöld (15.maí) kl 19 í Efra Sandgerði,,og kl 20 kemur Bíbí Ólafsd miðill og ætlar að vera með okkur fram á kvöld.. kostar 3000kr með kaffinu;) Og aðrar konur þá er aldrei of seint að byrja í kvenfélaginu;)

Sem sagt spennandi fundur framundan.

03.05.2012 20:40

Fundur þann 15. maí n.k.

Fundur verður þriðjudaginn 15. maí n.k. kl. 19:00 muna að kaffisjóðurinn er 1000kr við erum að safna fyrir skemmtiferð í haust og til að eignast pening verða konur að mæta á fundina;) og kl. 20:00 kemur Bíbí Ólafsdóttir miðill það eru öllum frjálst að vera á þeim fundi en hann kostar auka 2000kr, öllum konum er frjálst að taka með sér eina vinkonu á miðilinn;)


Hlökkum til að sjá sem flestar konur




10.04.2012 16:57

Vorganga KSGK

Vorganga KSGK byrjar á Bessastöðum þann 8. maí kl. 17:00. Byrjað verður að snæða pönnukökur og kaffi á Bessastöðum og síðan gengið um Álftanesið. 
Mætum sem flestar Hvatarkonur.

Kveðja 
Vilborg og Konný

01.02.2012 23:56

Aðalfundur kvenfélagsins Hvatar

Nú er komið að hinum árlega aðalfundi,
verður hann haldinn í efra sandgerði
þriðjudaginn 7.feb kl 20:00
.
 
Málefni fundar eru:

Kosting varaformanns,gjaldkera,vara gjaldkera,ritara og vara ritara.
Félagsgjöld og styrktarfélagar.
fjáraflanir.
Ferðanefnd og gera skemmtinefnd
Ferðir innan kvenfélagsins

Endilega að reyna að komast sem flestar svo ekki þurfi að koma til auka fundur:)

15.11.2011 20:44

JÓLAFUNDUR ÞANN 6. DES. N.K. KL.18

Jólafundur kvenfélagsins Hvatar verður þann 6. des n.k. klukkan 18:00

Byrjað verður að föndra eitthvað skemmtilegt saman og svo byrjar maturinn 20:00 og kemur sr. Sigurður Grétar og verður með hugvekju. Auðvita verður pakkaleikurinn og upphæðinn á pakkanum má vera 500-1000 kr eða eitthvað fallegt sem við gerum sjálfar.

Hlökkum til að sjá sem flestar og höfum gaman saman 

09.05.2011 19:40

Fata og kaffisala laugardaginn 14. maí. nk. frá kl. 14-17.-

www.Fashion4all.is og www.Tara.is
Glæsileg kvennmanns föt á konur af öllum stærðum, æðislegar kvenmanns nærbuxur á 500.kr stk og karlmanns boxer 1100.- svo eru t.d. töskur og æðislegt glingur.
Flottar sokkabuxur frá Tara.is
Og þær hafa posa ;-)

Kvenfélagið Hvöt fær 10% af sölu dagsins og mun það fara til líknarmála
Einnig verður kvenfélagskonur með kaffi og vöfflur til sölur en við höfum ekki posa því miður.
Hlökkum til að sjá sem flesta



15.12.2010 14:18

Jólaball þann 29.des n.k.

Þann 29. desember n.k heldur Kvenfélagið Hvöt jólaball í Grunnskólanum
frá kl. 16:00-18:00.

Jólasveinar mæta á svæðið og hljómsveit spilar jólalög á meðan
dansað er í kringum jólatréð.

Allir krakkar fá nammipoka frá jólasveinunum og boðið verður upp á kaffi og djús.

Allt þetta er frítt í boði Kvenfélagsins.
Vinsamlegast er tekið fram að börn verða að vera í fylgd með fullorðnum.

Kveðja Kvenfélagskonur

02.11.2010 19:01

Minni á kvenfélagsfundinn n.k. Fimmtudagskvöld kl 20:00

MINNI Á !!!!!
Kvenfélagsfundinn fimmtudagskvöldið 4. nóvember kl. 20:00 í Efra Sandgerði hlakka til að sjá ykkur skvísur.
Kveðja Vilborg

22.10.2010 21:14

Félagsfundur þann 4. nóv. n.k. FIMMTUDAG !!

Næsti félagsfundur okkar Hvatar Kvenna er FIMMTUDAGINN 4. NÓV. KL. 20:00 er haldinn í Efra Sandgerði að vanda.

Konur sem hafa áhuga á að ganga í kvenfélagið Hvöt eru hjartanlega velkomnar á fundi.

22.10.2010 20:46

Dagskrá 2010-2011

Vetrarstarfið 2010-2011

12. október  kl. 20:00 Súpufundur

4. nóvember kl. 20:00 Fundur

14. desember kl. 18:00 Jólafundur og hnýttur nammikrans

Janúar Sólrisuhátíð eldriborgara

1. febrúar kl. 20:00 Aðalfundur

1. mars kl.20:00 Fundur

5. apríl kl. 20:00 Páskafundur

3.maí kl. 20:00 undirbúningsfundur fyrir vorferðalag

Júní Vorferðalag

Fundirnir eru haldnir í Efra Sandgerði, Lions húsinu

Konur sem hafa áhuga á að ganga í kvenfélagið Hvöt eru hjartanlega velkomnar á fundi.

08.01.2010 16:41

Prjónakvöld ungbarnahúfum

Mánudagskvöldið 11. janúar kl. 20:00 í Efra Sandgerði og ætlum við að hafa prjónakvöld og prjóna ungbarnhúfur sem gefa á til nýfæddra íslendinga á árinu 2010emoticon 
Kvenfélagskonur mætum nú og prjónum saman. Þær sem kunna ekki að prjóna, komið samt og lærið eða skemmtið okkur hinum.

Uppskriftinn af húfunum má finna á síðunni okkar.

Hlökkum til að sjá sem flestar

08.01.2010 16:07

Húfuverkefni KÍ

Húfuverkefni Kvenfélagasambands Íslands Prenta Tölvupóstur
Í tilefni 80 ára afmælis Kvenfélagasambands Íslands árið 2010 stendur til að gefa öllum nýburum sem fæðast á Íslandi á afmælisárinu húfur.

  • Húfuverkefnið snýst um að prjóna húfur og afhenda þær öllum börnum sem fæðast á Íslandi árið 2010. Áætlað er að um 5000 húfur þurfi í verkefnið en gert er ráð fyrir að um 5000 börn fæðist á landinu afmælisárið.
  •  Kvenfélagasamband Íslands í samvinnu við Ljósmæðrafélag Íslands og kvenfélögin í landinu standa að verkefninu.
  •  Kvenfélagasamband Íslands dreifir verkefnislýsingu og uppskrift að litlum húfum sem passa á nýbura ásamt merkimiðum til að merkja húfurnar. Ístex leggur til merkimiðana, á þeim eru upplýsingar um verkefnið og leiðbeiningar um meðhöndlun húfunnar sem prjónuð er úr Kambgarni.
  •  Kvenfélagskonur prjóna húfurnar og skrá nafn sitt og kvenfélag á merkimiða sem fylgir hverri húfu.
  • Hvert kvenfélag skipar húfumeistara sem hefur umsjón með verkefninu í sínu félagi. Felst það  m.a. í því að taka á móti húfunum, sjá um að þær séu merktar og koma þeim til formanna eða húfumeistara héraðssambandanna.
  • Húfumeistarar eða formenn héraðssambandanna taka á móti húfum og eru tengiliðir við húfumeistara KÍ sem sjá um að fjöldi móttekinna húfa og áætlaður fjöldi fæðinga fari saman. Þær skipuleggja einnig dreifingu á húfunum til ljósmæðra á fæðingardeildum um allt land.
  • Ljósmæður afhenda foreldrum nýburanna húfurnar við útskrift af fæðingardeildum og í heimahúsum þar sem fæðingar verða.
  • Konum utan kvenfélaganna er velkomið að leggja verkefninu lið og má hvort sem er merkja þær húfur Kvenfélagasambandi Íslands, héraðssambandi eða kvenfélagi á viðkomandi svæði, sem og prjónakonunni.

Kvenfélagasamband Íslands vonast er eftir almennri þátttöku um þetta góða verkefni sem er  tvíþætt. Annars vegar snýst það um að láta gott af sér leiða og gefa öllum börnum handprjónaða  húfu og hins vegar um að vekja athygli á kvenfélögunum í landinu og starfssemi þeirra.
Kvenfélagasamband Íslands dreifir uppskrift að litlum húfum sem passa á nýbura og merkimiðum með upplýsingum um verkefnið og leiðbeiningum um meðhöndlun húfunnar.

Uppskrift af KÍ húfunni

Stærð:   0-3 mánaða
Efni:      Kambgarn frá Ístex
Prjónar: Sokkaprjónar og 40 cm hringprjónn nr. 3
Sjá má stóra og góða mynd af húfunni inn á myndasíðu okkar.

Húfan:

Fitja upp 102 lykkjur á prjóna nr. 3 og prjóna 5 umferðir perluprjón eða garðaprjón fram og til baka, að öðru leyti er ´húfan prjónuð með sléttu prjóni.
1.    umferð:
  • Tengja í hring og prjóna 15 lykkjur sléttar
  • taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir þá prjónuðu,
  • prjóna 15 lykkjur sléttar,
  • slá upp á prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta, slá upp á prjóninn,
  • prjóna 15 lykkjur sléttar.

    Endurtaka:
  • Taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir þá prjónuðu,
  • prjóna 15 lykkjur sléttar,
  • slá upp á prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta, slá upp á prjóninn,
  • prjóna 15 lykkjur sléttar.
  • Taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir þá prjónuðu,    
  • prjóna 15 lykkjur sléttar,
  • slá uppá prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta, slá upp á prjóninn (og þá er prjónuð 2. umferð) ef prjónað er á fjóra prjóna er auðveldast á flytja fyrstu lykkju yfir á  prjóninn, sem verið var að prjóna og prjóna hana slétt, til að auðvelda að prjóna úr uppsláttarbandinu í lok 2. umferðar.

2.    umferð: Prjóna slétt.
3.    umferð:

  • Prjóna 15 lykkjur séttar (ath. fyrsta lykkja í 3. umferð er síðasta uppsláttarbandið í 2. umferð),
  • taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir þá prjónuðu,
  • prjóna 15 lykkjur sléttar,
  • slá uppá prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta, slá upp á prjóninn,
  • prjóna 15 lykkjur sléttar.

    Endurtaka:
  • Taka 1 lykkju óprjónaða, prjóna 2 lykkjur sléttar saman, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir þá prjónuðu,
  • prjóna 15 lykkjur sléttar,
  • slá upp á prjóninn, prjóna 1 lykkju slétta, slá uppá prjóninn, prjóna 1 lykkju slétt, farið eins að og lýst er í lok 1. umferðar.
4.    umferð: Prjóna slétt.
  • Eftir 4 umferðir færirðu síðustu lykkju yfir á fyrsta prjón, alltaf í munstur pr. Endurtaka þriðju og fjórðu umferð 10 sinnum í viðbót, alls 12 útaukningar og 12 úrtökur, samtals 24 umferðir.
  • Úrtaka í kollinn.
  • Nú er hætt að auka út (ekki er lengur slegið uppá prjóninn) haldið áfram að taka úr eins og áður, en nú er það gert í hverri umferð þar til 12 lykkjur eru eftir.
  • Prjóna 2 lykkjur saman út umferðina, þá eru 6 lykkjur eftir.
  • Slíta bandið frá skilja eftir smá spotta,  þræða spottann gegnum lykkjurnar og ganga frá. Prjónað band í spíssin á hvorri hlið: Taka upp 3 lykkjur, prjóna slétt (alltaf frá sömu hlið) færa bandið aftur fyrir prjóninn og prjónið áfram ca 20 - 25 cm.
Ath.     Þegar uppskrift byggir á aðferðunum að - taka úr og auka út - þarf að auka út jafn oft og tekið er úr yfir umferðina svo lykkjufjöldinn breytist ekki.

27.12.2009 18:47

JÓLABALL

Jólaball Hvatar verður haldið í
samkomuhúsinu Sandgerði
þann 29.desember kl. 15:00 - 17:00

Jólasveinninn mætir að sjálfsögðu á svæðið.
Hljómsveit spilar jólalögin fyrir okkur á meðan við dönsum með börnum okkar í kringum jólatréð.
Nammipokinn verður að sjálfsögðu gefin.
Einnig verður Kaffi og djús í boði.

Endilega verum duglegar að mæta með börnin okkar, barnabörnin og já líka barnabarnabörnin

07.12.2009 17:42

Jólafundur

 
 
Þann 8 desember n.k. er jólafundurinn okkar og byrjar hann kl 18:00
með því að við hnýtum nammikrans eins og í fyrra.
Það er ekki skylda að koma á hann en gaman væri að sem flestar gætu komið og verið með okkur.
Við verðum með hringi, tvinna og borða til sölu og kostar 650 kr(hringurinn kostar 550 og 100 kr böndin) endilega komið með hringi ef þið eigið þá til og verum saman að hnýta og borða nammi ha ha. (það kostar ekkert að læra að hnýta)
 
Fundurinn byrjar kl 20:00 og maturin um 20:30.
 
Það er hangikjöt, uppstúf, baunir, rauðkál, kartöflur og laufabrauð og eftirétturin verður eitthvað mjög gott.
Kaffi og eitthvað nammigott með því.
 
Maturin kostar 2000-2500 kr og er borgað á fundinum jólapakkin má kosta 1000 kr en ekki meira.
 
Munið að láta málshátt í pakkan má vera hvernig sem er t.d.  ljóð, frumsaminn málsháttur, látið hugmyndaflugið ráða.
Endileg látið þær vita sem ekki fá tölvupóst.
 
Hlakka til að sjá ykkur  hressar, kátar  og í jólaskapið Smile emoticon
 
Kveðja
Auðbjörg Laufey Guðjónsdóttir
formaður

09.10.2009 14:07

Dagskrá Hvatar 2009-2010

Vetrarstarfið 2009-2010

6. október  kl. 20:00 Súpufundur

23. október kl. 19:00 Kósýkvöld í sundlaug Sandgerðis og dinner á Vitanum kl. 21:00

3. nóvember kl. 20:00 Fundur

 21. nóvember Námskeið í aðventukransagerð

8. desember kl. 18:00 Jólafundur og hnýta nammikrans

Janúar Sólrisuhátíð eldriborgara

2. febrúar kl. 20:00 Aðalfundur

2. mars kl.20:00  Undirbúningafundur fyrir kvennakvöld

6. mars Kvennakvöld kvennfélagsins Hvatar í Samkomuhúsinu Sandgerði

6. apríl kl. 20:00 Páskafundur

4. maí kl. 20:00 undirbúningsfundur fyrir vorferðalag

Júní Vorferðalag

Fundirnir eru haldnir í Efra Sandgerði, Lions húsinu, fyrsta þriðjudag í mánuði

Nýjar konur eru sérstaklega velkomnar

Félagsgjaldið er 2000.- Þær sem ekki hafa greitt að loknum fundinum í nóvember geta fengið gíróseðil fyrir gjaldinu og kostnaði hans. Þær sem vilja greiða í gegnum heimabanka geta haft samband við gjaldkera
  • 1
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 31
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 34163
Samtals gestir: 13218
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:43:44