07.02.2012 22:58

Aðalfundur

Í kvöld 7. feb var haldin Aðalfundur kvenfélagsins Hvatar í Efra sandgerði mætar voru 15 konur og nokkrar boðuð forföll. Kosin var í Varaformannin Aðalheiður Guðrún Halldórsdóttir en hún tekur við af Auðbjörgu Laufeyju Guðjónsdóttur og þökkum við henni fyrir frábært starf í þágu kvenfélagsins Hvatar. Kosin var í vararitaran Guðrún Pétursdóttir og tekur hún við af Ásu Guðmundsdóttur  og þökkum við henni fyrir frábært starf. Kosin var í varagjaldkeran Ása Guðmundsdóttir og tekur hún við af Valdísi Sigurðardóttur og þökkum við henni fyrir frábært starf. Einnig voru kosnar sem endurskoðendur Ann Fri Johannsen og Þóra Björg Guðjónsdóttir.
Á fundinum var ákveðið að hækka kaffigjaldið úr 500 í 1000.kr  en það hefur verið 500 kr. í mörg mörg ár. Rædd voru ýmis skemmtileg mál að vanda..... það er sko ekki leiðinlegt að vera í kvenfélaginu við erum svo skemmtilegar og viljum endilega sjá nýjar dömur, næsti fundur er 6. mars n.k. kl. 20:00 í Efra Sandgerði.

Takk fyrir skemmtilegan fund 
Vilborg
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 31
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 34163
Samtals gestir: 13218
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:43:44