15.05.2012 22:40
Félagsfundurinn þann 15. maí
Fundurinn byrjaði kl. 19:00 og var góð mæting. Byrjað var á að ræða 17. júní og var ákveðið að slá af kaffisölu á þeim degi vegna dræmrar aðsóknar undanfarinn ár. Farið var yfir töskusauminn fyrir Landsþingið og ætla Hvatar konur að hittast sauma töskunar. Farið verður í haustferð í staðinn fyrir vorferð. Þrjár ungar dömur gengu í félagið og bjóðum við þær hjartanlega velkomnar.
Svo var kaffi hlé
kl. 20 kom Bíbí Ólafsdóttir miðill og var með skemmtilegan fyrirlestur og las í árur og afmælisdaga kvenfélagskvenna.
Virkilega skemmtilegur og fræðandi fundur.
Skrifað af Vilborgu Auðuns
14.05.2012 19:54
Minni á Kvenfélagsfundinn
Minni kvenfélagskonur á fundinn í annað kvöld (15.maí) kl 19 í Efra Sandgerði,,og kl 20 kemur Bíbí Ólafsd miðill og ætlar að vera með okkur fram á kvöld.. kostar 3000kr með kaffinu;) Og aðrar konur þá er aldrei of seint að byrja í kvenfélaginu;)
Sem sagt spennandi fundur framundan.
08.05.2012 20:22
Heimsókn á Bessastaði
Við Hvatar dömur fórum á Áftanesið og hittum aðrar kvenfélagskonur innan KSGK. Byrjað var að skoða Bessastaðkirkju þar sem Anna Ólafsdóttir Björnsson Sagnfræðingur fór yfir sögu Álftanes. Virkilega falleg kirkja sem við eigum þar. Síðan fórum við á Bessastaði hittum Forsetan hann Ólaf Ragnar og Dorrit, fengum mynd af okkur Hvatar dömum með forsetanum og frú kemur hún inn síðar. Boðið var upp á léttar veitingar, skoðum við svo Bessastaði. Það var virkilega gaman að sjá fornleifauppgröftinn í kjallara Bessastaða.
Síðan labbaði hluti af hópnum út í Jörfa þar sem boðið var upp á samlokur, kökur og kaffi.
Yndisleg ferð og takk fyrir okkur
Skrifað af Vilborgu Auðuns
03.05.2012 20:40
Fundur þann 15. maí n.k.
Fundur verður þriðjudaginn 15. maí n.k. kl. 19:00 muna að kaffisjóðurinn er 1000kr við erum að safna fyrir skemmtiferð í haust og til að eignast pening verða konur að mæta á fundina;) og kl. 20:00 kemur Bíbí Ólafsdóttir miðill það eru öllum frjálst að vera á þeim fundi en hann kostar auka 2000kr, öllum konum er frjálst að taka með sér eina vinkonu á miðilinn;)
Hlökkum til að sjá sem flestar konur
Skrifað af Vilborgu Auðuns
- 1
Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 31
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 34163
Samtals gestir: 13218
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:43:44
